Goðin @ Hornafjörður, Höfn

.:Legends:.

06.04.2008 22:31:44 / Fransi

Söngvakeppni framhaldsskólanna?

Veriði sæl og blessuð.. langt síðan maður lét að sér kveða á best gerðu síðu í Evrópu. Það er nú margt og mikið búið að gerast hjá mér en ekkert mjög merkilegt samt.. er bara á fullu í boltanum og skólanum og svona og hlakkar mig til að skólinn endi, það verður merkisdagur! En svo ég komi mér að efninu, ætla ekki allir á söngvakeppnina næstu helgi? Held það verði drullu gaman sko, veit ekki hvernig þetta virkar er söngvakeppnin á föstudeginum og svo ball á laugardeginum, eða er ekkert ball eða hvað? Allavega ætla ég að keppa einn leik á laugardeginum og svo renna til AK.. yeah! En please commentið svo Goðin sjái hverjir eru að skoða síðu djöfulinn.

Svo bjó ég til smá lista yfir leiðinlega hluti. Veit þið eruð sammála.

* Þoli ekki þegar fólk segist vera að fara til "Borgar Óttans" þegar það er að fara til RVK. Búið að nota þennan frasa
of oft og löngu hætt að vera frumlegt eða fyndið.

* Þoli ekki þegar ég set uppáhaldslagið mitt á fóninn í bíl kannski, og einhver byrjar að syngja á fullu með. Ég vil
alltaf lifa mig inn í lagið og get það bara einfaldlega ekki þegar einhver skíítfalskur skítseggur reynir að syngja með.

* Þoli ekki þegar fólk er alltaf að breyta personal message-inu sínu með "hnyttnum" skilaboðum, það skilur greinilega
ekki að þetta er asnalegt. Mín skoðun er sú að heita eitthvað sniðugt eins lítið og maður getur. Þá verður það alltaf
sérstakara þegar maður heitir það. Tökum Sigga á Klettabrekku sem dæmi. Þegar þetta er skrifað heitir hann "It's all about choices the ones we make and the ones we dont.
And the consequences, those are always fun" Það er gott dæmi um sérstök personal message. Nema þegar hann hét "Gleðilegt Nýtt Ár" fram í mars.

* Þoli ekki að sofa yfir mig. Það er án efa með verstu tilfinningum í heimi. Svaf yfir mig um daginn og held ég hafi sjaldan
eða aldrei orðið jafn pirraður!

* Þoli ekki fólk sem styttir orðið pepperoni í "pepp". Þetta er leiðinleg stytting á fallegu orði og í raun og veru er hægt
að setja þetta í sama pakka og "Borg Óttans" hlutinn.

* Þoli ekki fólk sem reynir bara eins og mikið og þau geta að vera geðveikt "steikt" á blogginu sínu og segja frá einhverju ófyndnu.
Síðan team-tumi.central.is er gott dæmi um hvað ég er að tala um, aðallega slúðrið

* Þoli ekki þegar Jay Leno segir " And say hello to John Melendez" þá kemur John Melendez með svona hermannahandarhreyfingu eins og
þegar hermennirnir segja "Sir, yes sir!" Of glataður gaur greinilega, gott dæmi um fólk sem playar sig kúl en er það EKKI!

* Þoli ekki þegar blýið í blýanti brotnar því mér bregður fyrst og verð svo reiður útí blýiið og kenni því um að það hafi brotnað en
samt veit ég að það var mér að kenna, ég hefði ekki átt að hafa það svona langt en ég verð bara reiðari að hugsa að þetta var mér
að kenna

* Þoli ekki að vera í golfi og eiga ÝKT lélegt högg og þurfa svo að labba á eftir kúlunni.

kíkið líka inná www.blog.central.is/stalinn_stinn

Mbk, Franster


» 11 hafa sagt sína skoðun

10.11.2007 18:56:53 / baddi

Hversu mikill flippari getur maður verið?

Hææ ég heiti Baldvin Haraldsson. Er ógðeslega mikill flippari.

» 4 hafa sagt sína skoðun

10.08.2007 00:34:10 / Fransi

Versló 07

Baddi með gott blogg sem á klárlega rétt á sér!!! Svolítið umdeilt blogg og allt það en það er bara betra. En verslunarmannahelgina sem átti sér stað seinustu helgi var ágæt og allt það en þó ekkert mikið meira allavega hjá mér. Ég fór á akureyri, Baddi til eyja og Gunnzi grey var heima hjá sér í World of Warcraft. Ætla aðeins að segja hvað ég gerði á Akureyri og svonaFórum ég, Ingvar, Ísak og Jón Oddur eftir æfingu á fimmtudaginn klukkan svona 21:00 til AK og ekkert smá skemmtileg bílferð, opnuðum nokkra kalda of vorum bara léttir á því. En nenni ekki að skrifa heilt blogg

Föstudagur:

·          Svaf í bíl um nóttina vaknaði illa ferskur og frekar kalt, forum svo í bakarí að fá okkur að éta

·          Fórum í Sundlaug Akureyrar og tjilluðum í nokkra vel valda klukkutíma

·          Fórum svo að borða á Hamborgarabúllu Tómasar og tróð ég feitum börger í mig.

·          Fórum í tjaldið að klæðast djammgallanum.

·          Þaðan lá leiðin í tjald til félaga okkar, Elíasar, Hjartar og Einsa P og þar var sett í sig þó nokkra öllara!!

·          Þaðan var haldið niðrí bæ í tívolí og hellt einhverjum kokkteilum í okkur

·          Eftir það lá síðan leiðin í Splash party þar sem við vorum á gestalista(vó, kjellarnir eða?)

·          Enginn þar þannig að leiðin lá á Sjallann á Alex Anderson sóðalegan DJ!!

·          Hann var nokkuð góður og endaði kveldið með vel völdu ráðhústorgsrölti

·          Svo heim í tjald að sofa

 

Laugardagur:

·          Fimmtudagur, föstudagur og laugardagur fannst okkur bara vera upphitun fyrir sunnudaginn því þá lá leiðin í froðupartý!

·          En allavega var Páll Óskar með sóðalegt ball og þar var tekið á því.

·          Byrjuðum kveldið eins og áður og helltum í okkur í hinu tjaldinu. Svo fórum við aðeins niður í bæ í smá tívolí og svona! Síðan taxi á Palla ballið og það var bara helvíti gott sko. Eftir það forum við aðeins á Sjallann á Stuðmenn, kostaði 2.500 kall inn en ég fékk einmitt frítt inn

·          Nuddaði stimpli sem einhver gaur var með upp við hendina á mér og það virkaði!

·          Alls ekki spes þar þannig við fórum bara í tjald að sofa

  Sunnudagur:

·          Nú var komið að aðaldeginum.

·          Byrjuðum hann eins og alla hina dagana, bakari, sund, éta, í tjald til Elíasar, Hjartar og Einsa P að sötra bjóren.

·          Þaðan lá leiðin á þetta margumtalaða froðupartý.

·          Það var þó ekki nema ágætt og mátti greina smá vonbrigði í hjarta mínu

·          En samt var djöfulli gaman og froðan var ekkert til að hrópa húrra fyrir sko

·          Þeir blönduðu svo ofur sterka blöndu að ég er ennþá geðveikt þurr í framan og svíður á ónefndan stað og líka á innanverðum lærunum!

·          Og eftir froðuna fóru ég og Jón Oddur niðrí bæ að chilla eitthvað.

·          Þar hittum við nokkra vel valda Egilsstaðabúa og einhverja Keflvíkinga sem settu svip sinn á bæinn (nei djók, illa orðað)

·          Ekkert smá gaman að spjalla þar á ofur fótboltatrúnó!!

·          Síðan lá leiðin heim í tjald þar sem maður var ofuræstur og í sjokki!

·          Sofnaði samt fljótlega

 

Já svona hljómar nú þessi æsispennandi ferð og verður hún seint endurtekin! Því á næsta ári ætla ég svo ofur klárlega til VESTMANNAEYJA það verða allir að fara þangað a.m.k einu sinni segir hún mamma. En svo á mánudeginum var bara ekið til njarðvíkur og tjellað þar.

En mæli eindregið með því að Baddzor komi með gott blogg handa okkur úr Eyjum, vantar góða sögu þaðan!!

Þangað til næst

kv. frans 

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 03:10:02 / baddi

Tímamót.

Eeeerum við að tala um blogg.

Sjíí, einhvern veginn lenti ég á gömlu bloggsíðunni minn, eða blog.central.is/baddih og guð minn almáttugur hvað maður var ógeeeðslega sýrður í bloggunum, og það eru ekki nema 1 og hálft ár síðan eða eitthvað. Það er allavega óóótrúlega gaman að skoða þetta og maður er ekki frá því að maður hafi jafnvel verið smá gelgja miðað við alla broskallana sem að flutu um færslurnar, en endilega kíkið á síðuna e. b.c.is/baddih.

Það er bókstaflega allt að fara að gerast á næstunni, ég er að fá bílpróf eftir 19 daga - fokk hvað þetta líður allt hratt -, versló er næstu helgi, og hlöðuball þarnæstu helgi þar sem ég er að vonast til að ná spjalli af góðvini mínum honum Ragnari sem ég hef ekki hitt í óratíð. Það er eins gott að allir mæti, því eins og kannski nokkrir hafa tekið eftir hef ég ekki veirð duglegur að sjá mig útá lífinu sökum vinnu, en nú er ég mættur ferskari en aldrei fyr og búinn að dusta af djammgallanum. Þetta verður svo sannarlega eðal djamm skal ég segja ykkur.

Gaman einmitt að segja frá því að ég tók bóklega bílprófið fyrir tæpum 2 vikum og fékk 3 villur. 2 í A - Hluta og 1 í B - hluta, var nett stressaður þegar gaurinn kom með lausnarblaðið að fara yfir, því ég fékk fokking tvær villur á FYRSTU spurningunni, pælið í því, en svo næstu 14 spurningar réttar. Gunni kagglinn dúxaði þetta næstum, en fékk 1 kjáwnavillu í B - hluta. Svo veit maður ekkert hvort að Fransarinn sé í einhverjum hugleiðingum að reyna við bílprófið, en maður nær litlu sambandi við kvikindið þar sem að það er fullt af pussy þarna í Reykjanesbæ að reykja á honum njólan. Fransarinn er einmitt að fara að koma og tendra á einhverju kerti hérna á föstudagskvöldið í tilefni af því að Landsmótið sé að fara að hefjast. En það er einmitt þvílikur viðburður, og þetta er 10. landsmótið, þannig að það má búast við góðri mætingu.

Svo er allt á rúi og stúi í sambandi við þessa Reykjavíkur ferð mína, en það bendir allt til þess að maður sé að fara beila, en það er alltaf næsta ár og þá vonandi næ ég að draga strákana með mér. Langar líka helst til að vera kominn á einhvern kagga áður en ég legg ferðir mínar í stóra eplið. En vonandi reddast þessi íbúðamál meeen. En ef þau reddast ekki, þá klárar maður bara stúdentinn hér - fyrst að maður veðrur nú hálfnaður með hann eftir næstu tvær annir - og fer svo bara í tölvuverkfræði við háskólann þegar ég lýk við stúdentinn, hljómar mjög skynsamlega.

Svo var ég að fá svona smjörþefinn að bílkaupum fyrir rúmum mánuði er ég keypti mér Savage 4,1 RTR kvikindi, en það er einmitt fjarstýrður bensínbíll sem að er feiknafjör að krúsa um á. Telja mig allir hálfgeðveikan yfir að hafa keypt þennan bíl, en það gæti svosem alveg passað þar sem að bræðslan gerir mann hálf ruglaðan. En næsta skref er þá bara að kaupa sér einn bíl í fullri stærð og megiði endilega hjálpa mér að leita. Þegar ég sá að Óli var kominn á þennan svaka looker, þá bara kemur ekkert til greina nema að minn bíll verði fokkin pimpin'.

Þið, lesendur góðir, hafið kannski tekið eftir því að lítið myndaflæði hefur verið á síðunni og hún hefur verið illa hirt, en núna eru tímamót í sögu goðanna því að nú næstu helgar verður myndavélin hæst í forgangsröð þegar að kemur að djamminu, og þá ætla ég að vonast til þess að síðan fari á réttu sporin aftur.

 En hvert ætla allir um Versló, ég var að hugsa um Akureyri, en það er víst bara so last year? Er Landsmótið málið?


Update.

ÉG ER AÐ FARA Á FOKKING ÞJÓÐHÁTÍÐ. VÚHÚ.

SJÁUMST Í DALNUM!

Þaaangað til næst,

B-Maðurinn


» 10 hafa sagt sína skoðun

05.06.2007 02:51:50 / Fransi

Hvað er að frétta?

Nýr liður hérna á síðunni, "hvað er að frétta?"

En þar ætla mismunandi fólk að segja frá því hvað er að frétta úr lífi þeirra.

Skulum bara byrja á mér. Er að vinna sem flokkstjóri í bæjarvinnunni, (er samt ekki viss hvort ég haldi áfram þar útaf ég er of ungur en i dont know, kemur í ljós) er um að fara á eitthvað flokkstjóranámskeið þar sem verður sýnt skyndihjálp og hvernig á að sporna gegn einelti og eitthvað þvílíkt ábyrgðarmikið dæmi (vá hvað það er ekki ég).

En allavega var á á sjómannadeginum í Grindavík á "Sjóaranum Síkáta" en sjómannadagurinn í Grindavík heitir það og fór á eitthvað ball með á móti sól og þeir voru ágætir. Fékk gítarnögl frá feita rauðhærða gítarleikaranum og auðvitað Magna líka.

En vá hvað það gerðist áhugaverður atburður eftir ballið, án gríns talið við mig á messengeranum og án gríns heavy nett saga! En gunnar og baddi ætla að setja inn myndir sem þeir hafa tekið undafarið og ætla að setja þær inn, eru í raun og veru búnir að taka fullt af myndum á bara eftir að setja þæir inn.

En stay tuned! Ekki skipta um stöð (eða bloggsíðu - ýta á refresh F5)

gott kvöld

P.S. Og það væri ágætt ef þið myndum commenta, gaman að sjá hverjir eru ennþá að skoða þessa síðu... 

 

kv. frans


» 10 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 20:21:46 / Fransi

dansinn dunar

Vá hvað þetta er óvinsæl síða :(

» 4 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 13:51:28 / Fransi

Myspace: Dauðara en rotnandi ísbjarnarhræ í eyðimörk

Glaðlega) Á sumarmánuðum í fyrra voru notendur MySpace í kringum 50 milljónir. Nú einni meðgöngu, eða níu mánuðum, síðar hefur notendafjöldinn þrefaldast telur í dag rúmlega 150 milljónir. MySpace er það internetsamfélag sem fer hraðast vaxandi í heiminum. Án efa er stór hluti notenda í leit að ástinni og nýtir sér tæknina til þess að reyna að koma áætlunum sínum í réttan farveg og genum í leiðinni. Aðrir nota Spacið fyrir:

*almennan gæjugang
*perraskap
*tengslanet og hressleika
*athyglissýki
*aðrar ofuregósentrískar gjörðir.

MySpace er eiginlega áttunda heimsálfan. Heimsálfan sem mótaðist síðust og dó fyrst. Ef þú prófar að googla "myspace+fuck" eða "hottie+myspace+brown eyes" eða "live+happily+ever+after+myspace" eða "clown+porn+myspace" eða bara eitthvað sem inniheldur "myspace" þá stendur ekki á svörum því þau hreinlega hrannast upp. 158.000.000 niðurstaða. Góðir lesendur - er (með áherslu) eitthvað eðlilegt við það?

Eftir að undirrituð setti sig í stellingar og kynnti sér stöðu mála til hlítar komst hún að óyggjandi niðurstöðu: (Alvarlega) MySpace er dauðara en rotnandi ísbjarnarhræ í eyðimörk. Sökkvandi skip. Meira last year heldur en niðurmjóar buxur og mun búnna en hamborgarahryggur aðfangadags 2006. Nú verða færð rök fyrir því.

Kynlífstengdir MySpace-glæpir
Foreldrar fimm stúlkna frá New York kærðu MySpace í janúar á þessu ári eftir að stúlkur þeirra voru kynferðislegar misnotaða af mönnum sem þær kynntust í gegnum þetta (kaldhæðið) "tækniundur". Allir mennirnir voru yfir fertugt, en létu sem þeir væru mun yngri. Þeir lokkuðu stúlkurnar til sín með bolabrögðum og skemmtilegum kommentum en misþyrmdu þeim að lokum, á mishrottafenginn hátt.

Þremur stúlknanna var byrlað eitur af MySpace-níðingunum, en tveir þeirra játuðu á sig sökina og fengu hvor um sig 10 ára fangelsisdóm. Dæmið frá New York er sannarlega ekki einsdæmi, því dæmi eru um kærur af sama meiði alls staðar að frá Bandaríkjunum og heiminum öllum. Sem dæmi um aðra kynlífstengda MySpace-glæpi eru þartilgerðar síður á Spacinu sem vændiskonur og mansalshópar hafa stofnað til þess að auglýsa "vörur" sínar og ná til tilvonandi viðskiptavina.

Ergo: Spacið getur verið argasti viðbjóður og óska-samkundustaður perverta og fársjúkra sjúklinga.

Fastandi Gyðingar berjast gegn Spacinu
Í fréttir rataði nýlega hópur Gyðinga í Bandaríkjunum sem tók sig til og sagði MySpace stríð á hendur. Þessi tiltekni trúflokkur fastar fyrir páskahátíðina með því að sniðganga vissa fæðu í ákveðinn tíma. Er það gert af trúarlegum ástæðum og fer fastan þannig fram að einstaklingar innan hópsins neita sér um vissar jarðneskar nautnir í ákveðinn tíma. Í þetta skipti voru nautnir þær ekki aðeins af matar- eða drykkjartoga, því ungmennum innan flokksins var gert að sniðganga MySpace sitt í þann tíma sem fastan stóð yfir. Í ljós kom að æskan var svo (hneykslað) sand-háð Spacinu að það reyndist þeim erfiðara að halda sig frá því en næringu.

Ergo: MySpace er ávanabindandi. Kemst það þar með í flokk með alkóhóli, majónesi og kókaíni.

Kornungt kvendi frá Michigan og palestínskur karl ástfangin
Í júní á síðasta ári komst ástartengt MySpace-mál í fréttir þegar bandarísk stjórnvöld létu stöðva 16 ára stúlkukind sem var á leið inn í líf karlmanns af palestínsku bergi brotnu. Hinn tvítugi Abdullah Jimzawi fann að eigin sögn ástina á MySpace í formi saklausrar stúlku frá Michigan, Katherine Lester. Vildi Jimzawi fátt annað gera en að verða hennar að eilífu. Katherine strauk að heiman og hafði í hyggju að setjast að í Ísrael þar sem MySpace-ástin hennar bjó. Hún komst alla leið til höfuðborgar Jórdaníu, Amman, þar sem hún var stöðvuð og send aftur í foreldrahús.

Unga MySpace-parið hafði hug á að eyða ævinni saman og voru þau m.a. farin að skipuleggja brúðkaup þrátt fyrir að hafa aldrei hist. Ég endurtek: (hæglega og kaldhæðið) "..farin að skipuleggja brúðkaup þrátt fyrir að hafa aldrei hist." (Hversu viðbjóðslega desperat getur manneskja verið?) Jimzawi brotnaði algerlega saman er hann fékk veður af því að stúlkan hans hafi verið send aftur til Bandaríkjanna og tilkynnti hann fjölmiðlum samdægurs að veröld hans hafi hrunið á einu augabragði til grunna. Táraflóðinu ætlaði aldrei að linna og honum kom ekki dúr á auga í þrjá sólarhringa (í mónótón) þar til hann stakk gadda í augað á sér sem leiddi til endaloka hans í heimi þessum. (Hunsið algerlega seinni hluta síðustu setningar ef þið viljið heyra sannleikann án ýkja).

Ergo: MySpacið er veruleikaflótti og síðasta vígi þeirra ástsjúku. Manngerð hugmynd um eilífa hamingju.

Spacið er ekkert nema djöfuls markaðsbrella
Vissir þú, ágæti lesandi, að höfuðstöðvar MySpace eru í Beverly Hills í Californíu? Að MySpace.com deilir húsnæði með fyrirtækjarisanum Fox Interactive Media? Að MySpace er í eigu fjölmiðlarisa frá Bandaríkjunum? (Sorglega) Að www.myspace.com er fimmta vinsælasta vefsíða á ensku í öllum heiminum? Að 300 manns vinna hjá MySpace? Að 230.000 notendur bætast við á MySpace daglega?

Ég ætla ekkert að taka einhverja týpu á þetta því staðreyndin blasir við mér: Ég var með MySpace. Þangað til ég fór að hugsa málið og kafa nánar ofan í saumana. Ég komst að ýmsu. (Fróðleiksfús) Jú, hverju komst ég að? (A-O liðir lesist frekar hratt.)

a) Fólk er miklu ljótara í raunveruleikanum en MySpace-myndir gefa til kynna.

b) Spacið er sannarlega ekkert annað en djöfuls tímaþjófur og óskatæki þeirra sem eru obsessed á tengslaneti og því að halda yfirborðs-hressu sambandi við allt og alla.

c) Ég er með símann hjá því fólki sem mig langar að vera með, ég þarf ekki MySpace til að eignast fleiri vini.

d) Fólk er ekki nærri því eins "hresst" og "flippað" og "hipp og kúl" og MySpace-síðan þeirra lætur í ljós.

e) MySpace vinátta er ekki raunveruleg. Hún er jafnhverful og fallvölt og frægðin. (Spurðu bara Friðrik Ómar "stór-söngvara").

f) Ég er ekki að meta ástleitin message frá hip-hop gaurum úr íranska ræsinu.

g) Spacið hefur orsakað sambandsslit. Annar aðili sambandsins skráði sig nefnilega "Single".

h) Það er miklu auðveldara að vera eitthvað hnyttin/n á Spacinu heldur en í raunveruleikanum.

i) Ég hef ekki tíma til þess að vinna í því að halda mér í sem flestum topp-sætum.

j) Hef ekki áhuga á að sýnast hnyttin á veraldarvefnum.

k) Get ekki lesið fleiri komment á mismunandi síðum sem hljóða svo: "Hæ, sætuzt! Skvízan bara mætt á Zpeisið, takk fyrir addið, beauty=)=) Kozzar&knúz!!"

l) Augu mín þola þetta ekki lengur.

m) Ég er of gömul fyrir þetta.

n) Vil ekki vita allt um alla eða geta komist að því. Horfa upp á fólk glata kúlinu og sjá sambönd bresta.

o) MySpace-ástin er ekki til.

Niðurstaðan er sáraeinföld:
(Hægt, skýrt, dramatískt) Elsku MySpace. Eins og ólgandi fljót er hið jarðneska líf síbreytilegt og bugðótt. Þú hefur glatt mig á ótal vegu (það hlýtur að koma "en" á eftir þessu) en ég umber þig ekki lengur. Tíminn sem við áttum saman var vissulega góður, en hér verða vatnaskil. Það er kominn tími á að ég syndi í lífsins straumþungu á án þín. Ég elskaði þig samt alltaf.

Farvel, kæri vinur. Farvel.

Björg Magnúsdóttir

Vá hvað þetta er fokkin bitur gella! Nýtur lífsins greinilega ekki til hins ýtrasta. Mér finnst myspace rokka og hver vill ekki vera athyglissjúkur af og til. Meira ruglið..
kv. frans

» 11 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 21:11:11 / Fransi

Haa??

Á ekki nógu marga vini á myspace!!!!!

Fokkin addið mér (samt í alvöru þá vil ég að þið addið mér)

www.myspace.com/franseh

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 00:25:56 / baddi

Hin vestræni heimur.

Ééég er svo sniðugur, í staðinn fyrir að vera að þykjast skrifa stíl í Dönsku er ég í rauninni bara að blogga þetta blog, og Villi kallinn er grunlaus um verknað minn. Nema að sjálfsögðu að honum detti í hug að kíkja inná þessa síðu. En eins og glöggir lesendur hafa máske tekið eftir er kominn talsvert mikill bloggleiði hjá okkur strákunum og myndaflæðið lítið eins og Fransi kom inná í einhverju stystu færslu sem ég hef nokkurn tíman lesið. En annars er það að frétta af okkur Gunnar að við erum bara að vinna hjá Best-Fisk og moka inn pening. Alltaf alveg þvílíkt stuð í humrinum.

 

En helgin var alveg kengimögnuð, spiluðum leik á Laugardaginn vs. Reyni Sandgerði sem endaði 2-1 fyrir Reyni. Ég skoraði btw, ýkt magnað mark. Styttist í að maður fari að henda inn myndunum á /fcsindri en þar sem að allur gærdagurinn fór í að skrifa lokaorð fyrir dönskuritgerð hafði ég ekki tíma.

 

Talandi um tölvur, þá er það að frétta af ferðatölvunni minni að hún er bara í fucked up ástandi og það tók gauranna hjá att.is ekki nema fjórar vikur að átta sig á því og því ákváðu þeir af góðsemd sinni að senda mér glænýtt eintak af enn einni ACER tölvu og var það tímabært þar sem að LANgrifflurnar mínar voru farnar að safna ryki uppá hillu. Spurning samt hvort maður plöggi ekki veðmál um hvað tölvan eigi eftir að duga mér lengi ... einhver game?

 

Svo er stóra spurningin í ár hvort að málið sé að flytja í bæinn eftir sumrið, en það mun af öllum líkindum gerast, nema að strákarnir beili, sem ég vona svo sannarlega að þeir geri ekki, því annars munu þeir svo sannarlega fá að finna fyrir þrúgi reiðinnar. Málið er s.s. að fara í Iðnskólann í Reykjavík og hefja nám við Tölvufræðibrautina. Það verður væntanlega þvílíkt stuð, og stefna svo að einhverjum Microsoft certified gráðum. Sjitt hvað ég á eftir að verða mikið nörd, en það er svosem í lagi.

 

En ætla að enda þetta blogg með einni dásamlegri mynd af mér. 

P.S. - Fyrir alla þá sem eru svalir, addið mér á mæspeis.

Kveðja,

Baldvin Haraldsson


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 18:55:11 / Fransi

Guðmundur Ingi er ýkt fínn gaur sko og Hildur samfélagsfræði kennari líka!

Já hafði titilinn svolítið umdeildan svo fólkið eða "the public" eins og ég kalla það fengi áhuga á að lesa bloggið. Virkaði það? En allavega þá komst ég í þetta þvílíka bloggstuð núna fyrir skemmstu og ætla kannski að setja nokkrar myndir líka!!! Vó er þetta að gerast?

En þess.. jaa .. já þess má geta ég hefði getað verið á leiðinni til Danmerkur á næsta föstudag en það verða landsliðsæfingar á þriðjudaginn og maður verður að mæta á hana, þ.e.a.s. ef maður verður valihttpnn í hópinn sem fer í úrslitin.

- Hópurinn sem fór til Portúgal. Erum þarna við höfnina í Peniche þar sem við gistum

Ástæðan fyrir þessari Danmerkurferð er að Njarðvík, meistaraflokkur, er að fara í baraeiginlega djammferð svona til að þétta hópnum saman (emotional). Verða bara nokkrar æfingar og einn leikur. Peace of cake.

En maður er nýkominn úr leik, unnum ÍH 3-0. Ég átti gríðarlega slappan leik, var bara eitthvað þungur veit ekki af hverju.. slæmt. Og svo má geta þess að það er svona sektakerfi í meistaraflokk og ég var efstur í því með 2.050 kall. Mjög nettar reglur get ekki sagt annað. 300 kall ef það er mynd af manni í fjölmiðlum og það komu nú nokkrar myndir af mér á fótbolti.net og álíka stórum síðum, já svona er að vera frægur (geðveikt self-centered gaur) og svo verður maður að segja "mjá" í öllum viðtölum sem maður lendir í annars er 500 kall í sekt og bannað að tala í síma á fyrir og eftir æfingar og bannað að vera með húfu á fundum og eitthvað vesen. En mínar sektir eru sem sagt þessar myndir, svo talaði ég einhvern tímann í síma á æfingu þegar ég var smá meiddur og eitthvað eitt í viðbót man ekki hvað það var.

En nenni ekki meir.

Later


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 22:39:22 / Fransi

Risinn er risinn

Nýtt blogg. Gunnar eða Baddi. Fljótlega. Mikill bloggleiði og lítið myndaflæði.

Kv. Frans

 

PS.

 En það er komið frekar nýlegt í slúður!!!!1 


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 15:46:38 / Fransi

faaaaaallega!

Nú má með sanni segja að maður sé orðinn legend! Nei djók, er ekki alveg svona self-centered en þessi ferð var svo fokkin nett að það er ekki eðlilegt. Ætla að koma með smá blogg og eitthvað skemmtilegt úr ferðinni.

 

Svona var dagskráin þegar það var ekki leikur

08:30 - Morgunverður

09:45 - Brottför á æfingu

10:00 -Æfing

12:30 - Hádegisverður

16:45 - Brottför á æfingu

17:00 - Æfing

19:00 - Kvöldverður

20:00 - Fundur

22:00 - Hvíld

Svona var dagskráin þegar það var leikur:

08:30 - Morgunverður

10:00 - Gönguferð

11:00 - Hádegisverður

12:45 - Fundur

13:00 - Brottför í leik

15:00 - Leikur

19:00 - Kvöldverður

22:00 - Hvíld

 

Helvíti þétt dagskrá og vá hvað það var fokkin gaman sko! Enginn bjóst við að við myndum gera einhverja rósir þarna en vá hvað við sýndum hverjir eru fokkin bestir! Allavega.. Svo maður tali nú aðeins um leikina þá vorum við betri í fyrrihálfleik á móti N-Írum og vorum 2-0 yfir en svo í seinni hálfleik skoruðu þeir strax eftir svona mínútu og við alveg duttum niður og þeir voru betri í seinni hálfleik og jöfnuðu.

Svo á móti Portúgölunum þá undurbjuggum við okkur vel og vorum klárlega betri en þeir og fengum 2-3 færi til að skora en því miður þá tókst það ekki. En þeir voru meira með boltann svona seinustu 10 mínúturnar en fengu samt ekkert almennilegt færi.

Svo á móti Rússum plönuðum við inn á veikleikana hjá Rússunum. Svona svipað og í FM þá er hægt að láta leikmennina loka á þá þannig þeir geta bara spilað með vinstri og við gerðum einmitt þannig, plönuðum að pressa þá hátt á vellinum þannig að við pressuðum á hafsentana og þeir voru ömurlegir með vinstri og þeir sendu bara einhverja ömurlega háa bolta sem við unnum strax og svo skipulögðum við okkur þannig að senda stungusendingar því þeir voru með stóra hafsenta sem hlupu bara hægt og Kolbeinn náttúrulega hljóp bara framhjá þeim og skoraði. Alger klassi og svo svoraði maður nú eitt skallamark eftir horn til að halda þessu við. Allt gekk upp í fyrrihálfleik og við ætluðum að koma í seinni hálfleikinn með það hugarfar að spila eins og staðan væri 0-0 og það var alveg að virka en svo skoruðum við fljótlega og staðan orðin 6-0. Þááá héldum við nú að þetta væri komið og slökuðum bara á en þá skoruðu þeir eitt mark og svo annað og svo þegar þeir skoruðu þriðja markið þá fann maður að eitthvað var að gerast en við héldum þetta út og komumst þar af leiðandi áfram!

Geðveikt og Rússarnir lágu bara á vellinum og grétu og svo var þjálfarinn þeirra rekinn eftir mótið en þeir eru nú meiru vitleysingarnir. Þeir voru bara eitthvað reykjandi allan tímann á hótelinu og svo seinasta daginn eftir leikinn við okkur fóru þeir bara á djammið og fengu sér nokkra kalda! Get nú reyndar ekki trúað að það hafi verið gaman því þetta er mesti sveitabær ever, sá ekki einn nettan klúbb þarna, kannski voru einhverjir sveitó barir eða eitthvað en það er nú EKKI gaman!

Allavega klassa ferð og maturinn þarna unaðslegur. Maður er gjörsamlega alltaf étandi í þessum ferðum sem er gott. En allavega þá set ég inn einhverja myndir af hótelinu sem við vorum í eða publisha link á myndasíðu því Brynjar í FH var nettur á myndavélinni og ætlar að setja þær på internettet. Getið líka farið inn á fótbolta.net .. einhverja myndir þar!

LATER!!!!


» 11 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 22:58:09 / Gunnar

franzi Negldi eina portúgalska

hér kemur sagan um franza í ferðinni sinni til portúgal.....

Dagur1. hann lagði af stað í útheiminn og vissi ekki hvað beið honum, hann hoppaði uppí flugvélina og pantaði sér tvöfaldan viskí og aspasúpu ekki leið á löngu þangaðtil þeir brotlentu á eyju sem heitir lost, en þeim var bjargað.

Dagur2.

Franzi lendir í portúgal ásamt liðinu sínu í þyrlu á fyrsta leikinn og þeir rúlla honum upp 4-3 á móti frakklandi zidane spilaði með frakklandi og skallaði 4 félagana hans franza og franzi fékk sér tvöfaldan captein og skallaði zidane og skoraði öll mörkin í leiknum eða 7 mörk, Hann fagnaði kvöldinu með tvöföldum vodka með steiktum lauk og hélt út á djammið og fékk pjúra blackout.

Dagur 3

hann vakna við það að það er alsber spikfeitur gaur við hliðinná honum en það var víst bara þjóniinn sem borðaði svo mikið að fötin slitnuðu af honum, sémsagt ekki hjásvæfufélgai franza það kvöldið, hann fór niður á barin og fékk sér tvöfaldan passoua (kelling) og hélt út í leit af æfintírum hann fór útá strönd og sá þar fíl, hann hoppaði á bakið á honum og þeir fóru útí frumskógin sem heitir "Dont go to the jungle you will die" hann hélt allavega að hann myndi heita það hann og fíllin kláus voru ekki lengi í skóginu þega það koma helling af hálfum öpum og hálfum górillum eða górillumenn þeir drápu fílin og bintu fransa fastan og byrjuðu á að éta fílin eftir að þeir höfðu étið fílin voru þeir svo saddi að þeir gleimdu fransa í smástund svo hann náði að flýja, hann fór á markaðinn og keypti sér skriðdreka og "eldbyssu" og kveikti í skóginum, síðan fór hann og fékk sér 5 staup af eplasnafsinu og fór síðan að keppa leikurinn fór 5-2 þeim í vil gegn grænlendingum franzi átti stórkostlegan leik og skoraði öll mörkin og varð svo svangur að hann borðaði 2 grænlendingana og fékk gult spjald. Fór síðan heim að sofa

Dagur 4

lokadagurinn og franzi ætlaði sko ekki að láta hann fara til spillis, hann byrjaði á að fá sér kassa af bjór og hélt enn og aftur í leit af æfintírum, hann byrjaði á að fara í hóruhús og keypti sér 4 hórur og fór með þær í göngutúr og lét þær allar vera með ól um hálsin og hann fór með þær eins og hunda út að labba, hann skipaði einni hórunni að taka gólfkylu og troða henni uppí rassgatið á sér. mikil gleði stóð yfir á meðan á því stóð. eftir það fór hann með þær uppí tré og lét þær éta naflakuskið hans franza, mikil gleði. síðan fór hann að keppa og tapaði á móti bretum 1-0 franzi átti ekkert markið vegna þess að hann fékk rautt spjald í byrjun leiksins fyrir að hlaupa alsper inná völlin öskrandi windows vista er best. eftir það fór hann inná bar með hamar og nagla og neldi portúgalska konu við kross og öskraði THE NEW JESUS!

þannig fór nú ævintírið hans franza hann skemti sér vel !


» 12 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 23:22:48 / Fransi

Djúpar pælingar um heiminn

Hef lengi verið að spá í því af hverju stelpur segja alltaf í commentum: "Flott blogg sæta:* ;D" Gaman að þessu, það væri geðveikt nett ef strákar myndu alltaf segja: "Geðveik síða sæti:* Hlakka til að sjá þig í skólanum á morgun beibí;)" og án þess að vera að grínast.

En langt síðan það var seinast bloggað þannig að ég ákvað bara að taka af skarið og láta bloggið flæða með hugmyndum og hugsunum um lífið og lúkurnar þessa dagana. Maður náttúrulega að fara til Portúgal á laugardaginn. Förum eitthvað 80 km norðan við Lissabon og verðum á þvílíku sleða-golfhóteli og strönd rétt við hliðiná en hún verður örugglega notuð eitthvað takmarkað. En engu síður nett að hafa strönd við hliðina.

En það er ekkert gaman að segja frá sjálfum sér mig langar miklu frekar að koma með skoðanir á hlutum eins og af hverju kakóið í skólanum er svona ógeðslega gott og 2 glös dugðu ekki til að svala kakóþorsta mínum þannig ég fékk mér 3.

Eða af hverju er rigningin glær? Af hverju eru hún ekki alveg eins blá eða gul. Það væri nett. Og svo hef ég verið að spá hvernig sjórinn dettur ekki út í geim í kína fyrst þeir eru neðst á jörðinni og af hverju jörðin er hnöttótt en samt flöt. Af hverju er Ítalía eins og stígvél í laginu? Hver er munurinn á lokhljóðum og önghljóðum? Og af hverju er Andrés Önd í engum buxum þegar hann spókar sig á götum úti en er svo með handklæði vafið utan um mittið svo enginn sjái drjólann á honum.. eða henni?? Fyrst "hann" er _önd_ sem er kvenkyns önd. Og af hverju heitir höddi "Geislavinur" á msn? Það er góð pæling! Af hverju eru sumar stelpur ljótar? Af hverju skapaði guð ekki allar stelpur fallegar? Og af hverju eru stelpurnar (Surprise, Sobrinas, RakkaDanZ og 780 og CARMSEX) svona miklar dúllur? Þetta eru skemmtilegar pælingar sem maður kemur með oftar inn og farið inn á

www.myspace.com/franseh

ef þið viljið vita meira.......... (úúúú dularfullt, núna verðiði að fara inná síðuna :!:)


» 15 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 16:01:35 / Fransi

Njarðvík

 

Erum við að tala um netta mynd eða??


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 89400